Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

...

ýmsar síður

07. desember 2006 klukkan 23:39
EG ER BUIN AD SKILA VERKEFNINU!!! 
Brosandi jeij eg er svo glod.

nuna a eg bara eftir ad skila 2 "take home test" og taka eitt litd og lett prof  Brosandi OG bara 6 dagar i heimferd!!! Brosandi
Anna Rósa Halldórsdóttir
2 athugasemdir

snjókorn á central Florida takk fyrir tekkkk!!!

22. nóvember 2006 klukkan 09:23

Já takk þetta var breaking news áðan, við erum að horfa á American Music Awards og þessi skilaboð komu upp á skjáinn áðan! jájá svona er þetta við erum bara að frjósa hérna, ekki nema 7° gráður hjá okkur áðan...og það er sko kalt hér trúiði mér!
Sængin er komin fram, við erum byrjuð að hita íbúðina OG ég fór í jakka yfir 66°N flíspeysuna!!! takk takk mamma er hitaplásarinn ekki örugglega ennþá til? og tjahh þú kannski reddar fleiri sængum...ég gæti þurft nokkrar...hehe

Hurðu hér er allt að verða kreisí, fólk komið í mikið hátíðar og verslunar skap, Þakkargjörðarhátíðin á fimmtudaginn og svo Black Friday = brjáluð verslun! =) Við fengum smá forskot á sæluna í gær en þá var okkur boðið í Thanksgiving mat til Mike og Rainy en svo förum við upp til Jacksonville til Garrett og Carrie á fimmtudaginn í mat. Þau eru nýgift og eru að sjá um matinn fyrir fjölskyldurnar sínar og já þau eru mjög trúuð, fara með borðbænir og svoleiðis þannig að þetta verður upplifun, doldið ólíkt okkur Árna mínum en hahh ég hlakka bara til. Við höfum farið í mat til þeirra áður og það var snilld, mjööög góður matur þar.

en jæja jájá best að fara að gera eitthvað af viti, á nú víst meira en nóg eftir að gera áður en að við komum heim, ekki nema 22 dagar í brottför!

heyrumst
Anna Rósa Halldórsdóttir
3 athugasemdir

lasi las

09. nóvember 2006 klukkan 00:09

Ég tók upp á því mér til óstjórlegrar gleði að verða veik, phuhh það er alveg ömó. Hangi bara heim og reyni að láta mér batna og reyni að klára þetta líka frábæra verkefni sem ég á að skila á morgun. Ég er semsagt að ger útdrætti úr þremur köflum í History of Architecture and Interiors og núna er það Renaissance tímabilið - stanslaust stuð. Blessaður kallinn sem kennir mér Mr.Peacock flottur kall sko en hann gerir ekki skemmtileg verkefni greyið. Við gerum alltaf svona útdrætti og fáum venjulega 2-3 vikur í það og svo þegar að við skilum þeim tjahh þá gefur hann okkur alltaf alveg yndislegt 100 spurninga take home test! ohh þetta er svooo leiðinlegt, en þetta gengur vel þannig að það heldur manni gangandi.

jæja nóg komið með þetta nám mitt, það styttist bara og styttist í heimferðina jeij Brosandi ekki nema 35 dagar í að við leggjum í hann! gaman gaman.
Tvær vikur í Thanksgiving, það verður næs að fá smá frí. Núna ætla ég að muna eftir Macy´s skrúðgöngunni og vakna og horfa og svo verður auðvitað allt vitlaust í jólainnkaupum á föstudeginum eftir, ég er nú farin að hlakka mikið til enda orðið stutt í þetta og þegar Thanksgiving er búin þá eru bara komin jólin hehe eða svoan næstum því! hehe já þetta er ég og mínar hugsanir í hnotskurn þessa dagana

Hurðu ég má ekki gleyma það vara bara hasar hérna hjá okkur á sunnudaginn. Það var bara byssubardagi í hverfinu við hliðina á okkur og bófinn flúði yfir í okkar hverfi, stökk í gegnum trén við þarnæsta hús! Jámm við heyrðum bara fullt af byssuskotum, Árni hélt að þetta væru bara flugeldar en ég efaðist sérstaklega eftir að það fóru sírenur á fullt og við heyrðum í þyrlu sveimandi yfir húsinu okkar. Við kíktum út og jú það voru allavega 3 löggubílar hérna við húsið okkar! takk takk fyrir takk en þetta varð allt í lagi, löggan náði honum og fullt af eiturlyfjum og svona þannig að við getum verið róleg! hehe ég ætti samt kannski að fara að ganga mér piparspreyið mitt á mér... humm æji nei ég held samt ekki

jæja ég held að þetta sé nú orðið alveg ágætt röfl í þetta skiptið
bæjó

Anna Rósa Halldórsdóttir
4 athugasemdir

Ég er á lífi en greinilega mjög lélegur bloggari...

27. október 2006 klukkan 22:51
Já ég sá að það væri kannski best að láta vita af sér. Af mér er allt fínt að frétta, tengdó og Bjössi og Helena komu í heimsókn í tæpar 3 vikur en fóru aftur heim á miðvikudaginn, við sáum nú reyndar ekki mikið af þeim í þetta skiptið en það verður vonandi betra næst þegar að þau koma. Skólinn er búinn að vera alveg á skrilljón, hann sér sko til þess að manni leiðist ekki, en núna róaðist allt mikið! sem betur fer. Ég skilaði inn stóru og veigamiklu verkefni í gær og það gekk bara vel, mér létti mikið við þau skil.
Núna er fyrsta helgin í langan langan tíma sem að ég get gert eitthvað smá annað en að læra og læra. Langþráð helgi, ég ætla að nýta hana aðeins í jólagjafakaup! :) jámm mín ætlar sko að vea snemma í þessu núna, ekki svona stress rétt fyrir brottför eins og í fyrra, er meira að segja búin að kaupa 2 gjafir strax! nokkuð ánægð með mig sko :) En já það hefur verið ákveðið að við komum heim um jólin!!! :) jeij ég er svooo glöð =) búin að bóka flugið og við komum heim 14.des og förum út aftur 5.jan! nokkuð gott stopp bara!

en jæja þá er ég búin að láta vita af mér þannig að það er best að fara að taka til og raða í fína skápinn sem við keyptum um daginn :)

heyrumst
Anna Rósa Halldórsdóttir
1 athugasemd

hún skrifar aftur...

17. september 2006 klukkan 21:31
jæja já þá bara allt orðið vitlaust í skólanum hjá okkur báðum, árna sé ég bara ekki orðið hann er fluttur á bókasafnið! jamm það eru verkefnaskil og próf og dásamlegheit flesta daga. ég er líka búin að vera í vinnunni bara alla vikuna til að bæta upp tímana sem ég missti á meðan famelían var hérna. ég þarf nefnilega að vinna 12 tíma á viku fyrir styrknum, var um 18 tíma held ég þessa vikuna,  gjeggjað stuð.
Í gærkvöldi var ég svo að vinna, það þessi líka svaka fína opnun hjá okkur, vín og læti. Við vorum sumsé að opna sýningu frá Lois Greenfield sem er alveg ótrúlega flottur ljósmyndari, hún myndar dansara, og ég mæli eindregið með því að fólk kíkí á verkin hennar þau eru mögnuð
http://loisgreenfield.com/. en já hún semsagt kom og var viðstödd opnunina og svo í framhaldi af því var hún með smá fyrirlestur og sýningu á því hvernig hún vinnur. þetta var ótrúlegt,þarna voru 3 dansarar sem hún hafði aldrei hitt áður, hún var ekki með sínar græjur með sér en samt komu þesar líka gjeggjuðu myndir og það besta við hana er að hún snertir aldrei photoshop eða eithvað svoleiðis, myndirnar eru allar alvöru!
jæja þá nóg komið af þessu rugli, best að fara að læra og tjahh kannki taka aðeins til hérna :/

bæjó
Anna Rósa Halldórsdóttir
2 athugasemdir

tilraun nr.2

08. september 2006 klukkan 08:20
Jæja þá á að gera aðra tilraun við að halda úti bloggi. við sjáum nú bara hvernig það fer, en ég ætla alla vega að reyna!

Já staðan hjá mér er þannig að ég er komin aftur út og byrjuð í skólanum og vinnunni. Ég hef nú reyndar haft öðru að sinna undanfarið afþví að pabbi, Fanney og krakkarnir ákváðu að skella sér hingað út til okkar! víhí =) Þau komu á föstudaginn fyrir 2 vikum en fóru heim núna áðan :(  Það var alveg rosalega gaman að hafa þau og sína þeim hvernig við búum hérna en það var líka leiðinlegt að kveðja þau áðan, en þau vonandi koma einhvern tímann aftur! :)

jæja ég segi þetta gott í bili, ég má nú ekki byrja of hraustlega...ég reyni samt að skrifa fljótt aftur!

bæjó
Anna Rósa Halldórsdóttir
2 athugasemdir